Jæja nú klárum við félagsaðstöðuna í Slippnum. Sækjum síðustu bókahilluna í Gilið og gerum allt glæsilegt. Slippurinn opnar 20:30.
Er svo ekki einhver með myndasýningu klára fyrir fundinn 24 maí? Koma svo. Engin að mynda?
Aðalfundur verður svo 31 maí. Dagskrá verður auglýst fljótlega.
Fyrirhugað er að hafa vorferð seinni part maímánaðar eða byrjun Júní. Það verður væntalega auglýst með frekar stuttum fyrirvara þar sem veðurfar kemur til með að stýra tímanum.
Þau ykkar sem misstuð af stórgóðri flass kennslu Þórhalls í Listigarðinum síðasta sunnudag. örvæntið ekki. Þórhallur er klár í að gera þetta aftur fljótlega.
Greiðsluseðlar fyrir árgjaldinu ætti svo að birtast fljótlega í netbönkum fólks.
Svo viljum við minna fólk á Facebook síðu félagsins. Þar er orðið hellings líf.
Stjórnin