Laugardaginn 4. febrúar kl. 14 verður sýningin Ljósmyndari Mývetninga – mannlífsljósmyndir Bárðar Sigurðssonar frá upphafi 20. aldar opnuð á Minjasafninu á Akureyri. Á sýningunni má sjá fjölda ljósmynda Bárðar, en þær gefa skemmtilega innsýn í líf Mývetninga við upphaf 20. aldar. Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðminjasafns Íslands, Menningarmiðstöðvar Þingeyinga og Minjasafnsins á Akureyri.
Meðlimir Álka hjatanlega velkomnir á opnunina.
HÖRÐUR GEIRSSON
Safnvörður
Ljósmyndadeildar
MINJASAFNIÐ Á AKUREYRI
Aðalstræti 58
600 Akureyri
s.462-4162


