Efni
Akureyrarbókin 2000
Akureyri, bærinn okkar, er viðfangsefni þessarar bókar. Tilefnið er hátíðarár stóraldamóta, afmælisár kristnitöku og landafunda. Bókin er gerð af félögum í Áhugaljósmyndaraklúbbi Akureyrar, Álka. Það ljær bókinni sérstöðu með tvennum skilningi. Annars vegar felur áhugamennskan í sér að ekki liggja atvinnu- eða arðsemissjónarmið á bak við myndatöku og efnistök og hins vegar að bókin er unnin af hópi heimamanna sem skoða og birta brot úr eigin heimahögum en eru ekki gestir eins og títt er þegar atvinnuljósmyndarar fást við hliðstæð viðfangsefni.
Tilgangur bókarinnar er fyrst og fremst að bregða upp svipmynd af heimabyggðinni, svipmynd sem sýnir mannlíf og umhverfi, atvinnulíf og athafnasemi, menningu og viðburði - eitt ár í sögu bæjarins - til fróðleiks og ánægju og ef til vill samanburðar síðar.
Myndirnar voru teknar frá hausti 1999 fram á haustið 2000. Myndasíðum og syrpum er raðað í meginatriðum í tímaröð eftir árstíðum. Bókinni er þó ekki ætlað að vera annáll ársins og hefur val viðfangsefna ráðist af áhuga og nánasta umhverfi þeirra félaga sem að bókinni unnu.


