Álka

http://www.ljosmynd.net/

Áhugaljósmyndaraklúbbur Akureyrar

Efni

Lög Áhugaljósmyndaraklúbbs
Akureyrar
Samþykkt vorið 1991,
Breytt á aðalfundi 16. apríl 1996 (5. grein)
Breytt á aðalfundi 19. mars 2009 (allar greinar nema 2. grein)

 

1. grein.
Félagið heitir Áhugaljósmyndaraklúbbur Akureyrar, skammstafað Á.L.K.A.

2. grein.
Markmið félagsins er að glæða áhuga og auka þekkingu félagsmanna á ljósmyndun
með fundarhöldum og vinnuaðstöðu.

3. grein.
Félagsmaður getur hver sá orðið sem æskir þess og greiðir félagsgjald. Greiði
félagsmaður ekki félagsgjald í tvö ár í röð fellur hann sjálfkrafa af félagaskrá.

4. grein.
Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum: Formanni, gjaldkera, ritara og tveimur
meðstjórnendum. Skulu þeir kosnir á aðalfundi félagsins til tveggja ára í senn. Ekki
mega fleiri en þrír stjórnarmenn ganga úr stjórn á milli ára. Stjórnin skiptir með sér
verkum.

5. grein.
Aðalfund skal halda árlega í janúar og skal hann boðaður með minnst tíu daga
fyrirvara. Tillögur stjórnar til lagabreytinga skulu kynntar í fundarboði. Tillögur til
lagabreytinga frá félagsmönnum skulu hafa borist stjórninni skriflega, eigi skemur en
fimm dögum fyrir aðalfund. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Allir
skuldlausir félagsmenn hafa atkvæðisrétt, málfrelsi, tillögurétt og kjörgengi til
stjórnarstarfa á aðalfundi. Aðalfundur skal ákveða félagsgjald hverju sinni.

6. grein.
Dagskrá aðalfundar.
1. Formaður setur fundinn.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla stjórnar.
4. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
5. Lagabreytingar.
6. Ákveðið félagsgjald næsta árs.
7. Kosning stjórnar.
8. Önnur mál.

7. grein.
Einfaldur meirihluti greiddra atkvæða ræður úrslitum mála á aðalfundi. Lögum
félagsins má aðeins breyta á aðalfundi og þarf til þess minnst 2/3 hluta greiddra
atkvæða.

8. grein.
Verði félagið lagt niður skulu eigur þess varðveittar í 2 ár hjá ljósmyndadeild
Minjasafnsins á Akureyri. Verði samskonar félag stofnað í bænum innan þess tíma
getur það yfirtekið eignirnar. Að öðrum kosti renna þær til ljósmyndadeildar
Minjasafnsins á Akureyri.

9. grein.
Félagsmenn skulu hlíta reglum félagsins í einu og öllu.

10. grein.
Lög þessi öðlast þegar gildi og falla jafnframt úr gildi öll eldri lög félagsins.

Upp aftur

Vinstri hlið

Leturstærðir

Upp aftur

Mynd af handahófi

Dagatal

« maí 2012 »
S M Þ M F F L
12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031

Akureyrarbókin 2000

bokin_120
Skrá í Álka

Könnun

Póstlisti




Öryggiskóði

Heimsóknir

91 heimsóknir í dag og 309335 samtals
129 flettingar í dag og 358720 samtals

Vefurinn fór í loftið 06.04.2007

Upp aftur